Hitafarið nær ekki tveggja stafa tölu á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn á miðvikudag og má búast við skúraleiðingum þar sem fjölmennustu hátíðarhöldin fara fram.
Hitt er augljóst að sumarið er komið - og vart að sjáist nokkur kuldi í kortunum næstu daga, enda gert ráð fyrir upp undir 20 stiga hita víða um norðanvert landið um miðja vikuna sem er kærkomið á þeim slóðum sem hafa glímt við mikil snjóalög og eiginleg harðindi það sem af er sumri.
Suðvestanlands verður útsynningur á þjóðhátíðardaginn og veðurglöggir menn vita hvað það þýðir; svalt og blautt.