Skúrinn með Jóa Bachmann var opnaður að nýju á Hringbraut í gærkvöld, en ný þáttaröð af þessum vinsælu bíladelluþáttum hóf þá göngu sína og var þar rætt við Skúla K. Skúlason sem er með magnaðan Chevrolet Camaro 1968 í sínum fórum.
Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinar, en umræddur bíll er feðgaverkefni hans og Einars Skúla Skúlasonar sem keyptu Camaróinn að utan en voru sviknir af bílasalanum. Skúli gaf hins vegar ekkert eftir í þessum viðskiptum og safnaði liði þeirra sem bílasalinn hafði svikið - og svo var bara sest upp hjá svikaranum þar til hann gaf sig.
Camaróinn er endursmíðaður af feðgunum og algert augnakonfekt, en saga bílsins er það mögnuð að \"við verðum að hafa hann í tveimur þáttum,\" eins og umsjármaðurinn orðar, vel hugfanginn af rennireiðinni at arna, enda sögurnar af henni margar: \"Eitt sinn ætlaði Skúli að hafa samband við fyrrverandi eiganda bílsins og hringdi, en náði aðeins í konuna hans, þar sem eigandinn hafði fallið frá kvöldið áður. Þá hafði farið kaldur gustur um skrifstofu Skúla hér heima og fann hann í kjölfarið upprunavottorð bílsins inn í skáp heim hjá sér,\" bendir Jói á og hefur bílinn grunaðan um fjölkynngi.
Í þætti kvöldsins er einnig kíkt á Benz Sprinter frá Öskju og rætt við Rally Palla eða Pál Halldór Halldórsson um Sprinterinn og fylgst með breytingum á honum hjá Jeppaþjónustunni Breytir, en þar á bæ fara menn færum höndum um gripinn svo eftir er tekið.
Loks fá áhorfenduyr að berja Café racer mótorhjól augum en þau eru verða vinsæl á Fróni eins og Ólafur R. Magnússon eða Óli Bruni eins og hann er betur þekktur segir betur frá í þættinum.
Skúrinn með Jóa Bach er frumsýndur öll mánudagskvöld klukkan 20:30, en nýja þáttaröðin varir fram á vor.
Upptöklustjóri þáttanna er Steingrímur Jón Þórðarson.