Skurðaðgerðir gagnvart yfirþyngd

Atvinnulífið verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld.  Þetta er annar þáttur af þremur þar sem starfsemi Klínikurinnar í Ármúla er til umfjöllunar. 

Í síðustu viku var fjallað um liðskiptaaðgerðir en að þessu sinni kynnir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson sér efnaskiptaaðgerðir sem ætlaðar eru fólki sem býr við mikla yfirþyngd.  Rætt verður við Aðalstein Arnarson skurðlækni sem segir frá mismunandi tegundum aðgerða og hverjum þær eru einkum ætlaðar.

Einnig verður fjallað um undirbúning slíkra aðgerða og rætt við 2 einstaklinga sem gengist hafa undir slíkar aðgerðir og tapað mikilli þyngd. Aðgerðirnar eru ekki niðurgreiddar af hálfu Sjúkratrygginga Íslands og hefur það sætt talsverðri gagnrýni þar sem biðlistar kunna að vera langir en kostnaður frekar hagstæður fyrir ríkið ef samið yrði við Klínikuna um slíkar aðgerðir. 

Sjón er sögu ríkari þar sem sýnt verður frá störfum lækna og hjúkrunarfólks á fullkominni skurðstofu. Kvikmyndataka og myndvinnsla var í höndum Friðþjófs Helgasonar.