Skúli stendur keikur

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, segir að ekki þurfi að auka hlutafé félagsins til að bæta eigin fjárstöðuna áður en ráðist verður í fyrirhugað skuldabréfaútboð upp á jafnvirði 6 til 12 milljarða króna. Eiginfjárhlutfall flugfélagsins, sem var aðeins 4,8 prósent í lok júní, muni batna verulega á seinni helmingi ársins en útlit sé fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) WOW air verði þá um 26 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um þriggja milljarða króna, og aukist um 159 prósent frá sama tíma fyrir ári.
Skúli, ásamt ráðgjöfum norska verðbréfafyrirtækisins Pareto Securities sem mun hafa umsjón með skuldabréfaútboðinu, hefur undanfarna daga átt fundi með fjárfestum í Norður-Evrópu í tengslum við skuldabréfaútgáfuna. Áætlað er að stærð útboðsins verði á bilinu 500 til 1.000 milljónir sænskra króna en útgáfan er hugsuð sem brúarfjármögnun fram að áformuðu frumútboði WOW air innan 18 mánaða.
Í viðtali við Markaðinn segir Skúli, sem er jafnframt eini hluthafi félagsins, að undirbúningur að þessari fjármögnun hafi staðið yfir í rúmt ár og því „teljum við okkur geta klárað hana hratt núna þegar formlegt ferli er hafið“.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018180829711/skuli-stendur-keikur