Skúli Gunnar Sigfússon í Subway gagnrýnir þá Benedikt Bogason, forseta Hæstaréttar og Svein Andra Sveinsson lögmann harkalega fyrir að hafa mætt saman á landsleik Íslands og Rúmeníu í liðinni viku.
„Það er á vissan hátt táknrænt að vinirnir skelli sér saman á knattspyrnuleik á sama tíma og fárviðrið geisar í kringum KSÍ. Forseti Hæstaréttar Íslands mætir á völlinn með „meintum“ geranda eins og ekkert hafi í skorist,“ skrifar Skúli.
Sveinn Andri var skiptastjóri í félaginu EK1923 sem var í eigu Skúla og varð gjaldþrota. Miklar deilur og dómsmál voru þeirra á milli vegna þessa máls.
Í færslu sinni ber Skúli sýnist Skúli bera alvarlegar sakir á Svein Andra. „Reyndar er í mínum huga karl um fimmtugt sem sannanlega hefur ítrekað reynt að tæla unglingsstúlkur og haft samræði við unglingsstúlku(r), sem eru rétt rúmlega fermdar, ekki meintur gerandi — hann er ekkert annað en gerandi,“ skrifar hann um fjandvin sinn.
„Það kemur sér vel fyrir Svein Andra að eitt fórnarlamba hans er ekki lengur á meðal okkar og getur ekki tjáð sig um það sem hann gerði henni. Hún var ung móðir sem tók eigið líf eftir að Sveinn Andri hafði vísvitandi tælt hana til sín og borið í hana eiturlyf þegar hún var að koma úr meðferð og ætlaði að standa sig fyrir barnið sitt.“ heldur Skúli ásökunum sínum áfram.
Þá segir Skúli að vinir Sveins Andra í dómsýslunni og Lögmannafélaginu hafi „ekki aðeins liðið hegðun hans heldur beinlínis verðlaunað hann með sporslum í formi úthlutunar feitra þrotabúa,“ eins og hann orðar það.
„Dugir þar að nefna þrotabú EK 1923 ehf. þar sem Sveinn Andri mjólkaði um 170 milljónir króna út úr búinu með því að rukka um 50 þúsund krónur á tímann þar sem hann gat sjálfur ráðið tímafjöldanum. Þrotabúið fékk hann hjá vini sínum og fyrrum samstarfsfélaga, Lárentsínusi Kristjánssyni héraðsdómara,“ skrifar Skúli og er rétt að byrja skothríðina.
„Annar stórvinur úr dómarastétt, Símon grimmi Sigvaldason, bætti svo um betur og lét Svein Andra fá þrotabú WOW air en Sveinn Andri mun væntanlega ná þar út hundruðum milljóna. Allt þetta er látið óáreitt. Það er eins og allir séu logandi hræddir við manninn og það á eflaust við um fórnarlömb hans einnig. Ég skil þau vel enda öllum kunnugt að maðurinn er stórhættulegur og hættir ekki þótt hann fái nei frá konum eða börnum,“ fullyrðir Skúli.
Bendir Skúli síðan að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi ítrekað komið fram í og lýst yfir áhyggjum af stöðu mála hjá KSÍ. Hú hafi sagt dapurlegt að svo mikið hafi þurft til að hrinda þessari atburðarás af stað hjá KSÍ. Meðvirkni með kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni liðist ekki lengur. Allt sé þetta rétt.
„En hvað með dómstóla landsins? Er ekki mikilvægt að þar sé tekið fast á málum? Er ekki dapurlegt að þar er ekki einungis kynt undir kynferðislegu ofbeldi, heldur sé gerandi látinn hafa verkefni af vinum sínum sem færa honum hundruð milljóna í tekjur?“ spyr Skúli sem kveðst ekk hafa heyrt forsætisráðherra lýsa yfir áhyggjum af „þeirri spillingu“ frekar en aðra stjórnmálamenn.
„Enda eru dómararnir ósnertanlegir og ulla í raun framan í forsætisráðherra með því til dæmis að mæta með geranda á knattspyrnuleik. Enda getur forsætisráðherra eða aðrir ráðamenn ekki snert þá og virðast ekki hafa nokkurn áhuga á að reyna það,“ segir að lokum í hinni harðorðu færslu Skúla í Subway.