Á þessum tímapunkti kemur ekkert sérstaklega á óvart að Icelandair kaupi Wow air, segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Skarphéðinn Berg Steinarsson Ferðamálastjóri í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.
Tilkynnt var í dag um kaup Icelandair á Wow air. Kaupin eru m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallar Íslands í dag. Jóhannes Þór og Skarphéðinn Berg telja að sameiningin verði að veruleika.
Þeir nefna þær augljósu staðreyndir að skuldafjárútboð Wow gekk ekki vel upp og lítið lausafé í fyrirtækinu. Erfitt sé fyrir Samkeppniseftirlitið að hafna því að Wow gangi inn í Icelandair Group þar sem Wow hafi verið það illa statt. Framundan sé líka vetrartíð sem flugfélög þurfi að halda út.
Fargjaldið mun án efa hækka og segir Skarphéðinn, sem áður var starfandi forstjóri Iceland Express enda hafi verðið hafi verið of lágt. Verðlagningin hafi ekki gengið upp. Hann bendir einnig á að Wow sé að vissu leyti nýsköpunarfyrirtæki og mjög framarlega í tæknilegum lausnum og það sé þekking sem nýtist Icelandair án efa.
Kaupin munu koma meiri stöðuleika á flugmarkað hingað til lands og frá segja þeir en þó megi ekki gleyma að hingað fljúga um 30 félög einnig. Fyrir ferðaþjónustuna er stöðuleiki góður sem fæst með þessari sameiningu.
Aðspurðir hvort Skúli hafi gert einhver afdrifarík mistök á einhverjum tímapunkti sem leiddi til þessarar niðurstöðu taldi hvorugur vera málið heldur sé flugbransinn einfaldlega of erfiður. Þetta dæmis sé þó engin sönnun þess að tvö íslensk flugfélög geti ekki starfað á sama markaði. Einnig séu litlar líkur á því að Samkeppniseftirlitið samþykkir ekki kaupin, þeir sjá fyrir sér að Icelandair haldi áfram rekstri undir sínu nafni og Wow verði lággjaldaflugfélag í eigu þess. Samkeppniseftirlitið líti til þess hve slæm staða Wow var orðin.
Þetta segja þeir þótt félögin tvö hafi vel yfir rúmlega alla farþegaflutninga til og frá landinu – Jóhannes bendir á að utan leiðanna til og frá landinu séu þessi félög ekkert með svo stóran markað.
Skúli Mogensen, eigandi Wow mun eiga að hámarki um 5 prósent eftir þetta og þannig fjármagni Icelandair kaupin sem eru upp á 2,18 milljarða og órafjarri því verðmati sem Skúli hefur haldið á lofti undanfarin misseri.