Skuldir landsvirkjunar lækka um 26 ma

Hagnaður Landsvirkjunar á síðasta ári nam 10,8 milljörðum króna sem er nokkru betri árangur en árið þar á undan. Skuldir fyrirtækisins hafa lækkað um 26 milljarða frá fyrra ári og rafokrusala þess á síðasta ári var sú mesta í sögu þess.

Nettó skuldir lækkuðu rösklega 26 milljarða á árinu 2015 og voru í árslok 254 milljarðar króna. Þá nam handbært fé frá rekstri 32 milljörðum króna sem er 6,5% hækkun frá árinu áður. 

\"Afkoma ársins var góð í krefjandi umhverfi, \"segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í ljósi hagtalna fyrirtækisins og segir það góð tíðindi í ljósi þess að álverð hafi farið lækkandi að undanförnu og mikil óvissa hafi ríkt á mörkuðum.

Hann segir að sterk sjóðstreymi hafi gert Landsvirkjun kleift að vinna áfram að lækkun skulda, en hreinar skuldir hafi ekki verið lægri frá því 2005 og lækkuðu um rúma 26 milljarða króna á árinu: \"Síðan 2009 hafa þær samtals lækkað um ríflega 107 milljarða króna. Skuldsetning samstæðunnar, mæld á móti rekstrarhagnaði fyrir afskriftir, lækkar töluvert og eiginfjárhlutfall er nú hærra en það hefur verið frá upphafsárum fyrirtækisins.\"

Hann bendir á að í  kjölfar þessarar góðu afkomu síðustu ára komi þau ánægjulegu tíðindi í byrjun árs 2016 að lánshæfismat Landsvirkjunar hafi verið fært í fjárfestingarflokk: \"Þrátt fyrir krefjandi umhverfi á flestum hrávöru- og orkumörkuðum er eftirspurn eftir orku frá Landsvirkjun mikil frá fjölbreyttum iðnaði. Fyrirtækið vinnur, innan þess svigrúms sem það hefur, að því að svara þessari auknu eftirspurn, en nú standa yfir framkvæmdir við byggingu jarðvarmavirkjunar á Þeistareykjum og nú á vormánuðum munu hefjast framkvæmdir við stækkun Búrfellsvirkjunar,“ segir Hörður.