Skuldir borgar áttfaldast á 35 árum

Reykvískir stjórnmálamenn hafa vægast sagt eytt um efni fram á síðustu áratugum, en skuldir Reykjavíkurborgar eru áttfalt hærri að raungildi í dag en þær voru árið 1981. Samhliða þessu hefur útsvar í borginni hækkað um 217% síðustu 20 árin.

Þetta er meginniðurstaða ítarlegrar úttektar Viðskiptablaðsins á fjárhagsstöðu borgarinnar í þeirri gegndarlausu skuldasöfnun sem þar hefur viðgengist um langt árabil með þátttöku allra stjórnmálaflokka sem kosnir hafa verið til áhrifa í borginni.

Borgarbúar skulda 26 sinnum meira í dag en þeir gerðu árið 1986 og má rekja þá þróun til mikillar framkvæmdagleði um og upp úr aldamótunum og allt fram að hruni þar sem eytt var árlega um efni fram.

Árið 1986 voru skuldir samstæðu Reykjavíkurborgar um 10,5 milljarðar að núvirði. Í dag nema þessar skuldir aftur á móti 273 milljörðum króna, að frátöldum lífeyrisskuldbindingum sem eru að andvirði 20 milljarða króna - og eru þá enn ónefndar ábyrgðir borgarinnar gagnvart þriðja aðila upp á 180 milljarða króna. Á sama tíma hefur íbúum höfuðborgarinnar fjölgað um 44%.

Af einstökum framkvæmdum Reykjavíkurborgar á þessu tímabili hefur Orkuveitan reynst henni dýrkeyptust, en á árunum 2001 til 2007 þegar skuldir borgarinnar jnukust um 120 milljarða króna vóg þáttur Orkuveitunnar lang þyngst.