Skuldastaða heimilanna sjaldan betri

Forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka segir lækkun skulda  íslenskra heimila þróun sem taki fram björtustu vonum.

Í nýrri greiningu Íslandsbanka kemur fram að skuldastaða íslenskra heimila sé ekki lengur há í alþjóðlegum eða sögulegum samanburði. Skuldir eru nú svipaðar og áður en bólan varð til fyrir áratug.

Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar Íslanbanka sagði í viðtali við fréttastofu Bylgjunnar að þetta væru afar hákvæðar féttir. Hið háa skuldahutfall hefði hægt efnahagsbatanum en nú hefði þróun verið snúið við.

Í alþjóðlegum skuldasamanburði standi íslensk heimili nú vel.