Sagan að baki skuldatryggingaviðskipta Kaupþings í samstarfi við Deutsche Bank varpar ljósi á vinnubrögð Deutsche Bank. Það er upplýsandi fyrir önnur mál sem Deutsche er viðriðinn, til dæmis peningaþvætti Danske Bank.
Í CLN sögunni íslensku fór tveimur sögum fram annars vegar meintar ólöglegar lánveitingar Kaupþings í sakamáli sem hefur farið fram og aftur milli íslenskra dómsstóla. Hins vegar er þáttur Deutsche Bank í þessum viðskiptum sem áttu að lækka skuldatryggingarálag Kaupþings. Þáttur Deutsche varð tilefni víðtækra málaferla í London og víðar og lauk með dómssátt í desember 2016: Deutsche féllst á að greiða skiptastjórum tveggja Tortólufélaga sem komu við sögu í viðskiptunum og slitabúi Kaupþings 425 milljónir evra af þeim 510 milljónum sem Kaupþing greiddi Deutsche í viðskiptunum. Fé sem Kaupþing tapaði.
Nánar á