Skrúfað niður í helga seljan

Verulegrar óánægju gætir innan dyra Útvarpshússins í Efstaleiti með nýjar siðareglur sem banna dagskrárgerðar- og fréttamönnum á Rúv að skrifa í frítíma sínum facebook-færslur með viðkvæmu samfélagslegu eða pólitísku innihaldi eftir því sem fram kemur í frétt á visir.is.

Er sérstaklega dregið fram í fréttinni að sjónarsviptir verði að Helga Seljan sem hefur verið iðinn við greiningar á facebook svo eftir hefur verið tekið. Þá verða ekki fleiri pistlar fluttir á Víðsjá í boði Eiríks Guðmundssonar, en framsóknarmenn hafa einkum kveinkað sér mjög undan pistlum Eiríks. Gæta á þess eftir því sem fram kemur hjá útvarpsstjóra, Magnúsi Geir í frétt Vísis að skoðanir blaðamanna komi ekki fram vegna mála sem þeir fjalla um.

Starfshópur sem ákvað þessa breytingu virðist ekki hafa horft til þess að í Siðareglum Blaðamannafélagsins er gerður skýr greinarmunurá viðhorfspistlum og fréttaflutningi eins og frem kemur í frétt Vísis. „Siðareglur þessar setja ekki hömlur á tjáningafrelsi blaðamanna sem skrifa undir fullu nafni afmarkaða þætti í fjölmiðlum, til dæmis gagnrýni, þar sem persónulegar skoðanir höfundar eru í fyrirrúmi.“

Blaðamenn hafa þjálfun í því að aðgreina eigin skoðanir við fréttavinnslu og framsetningu þeirra en hvað þeir aðhafast í frítíma hefur fallið undir tjáningarfrelsi. Kristinn Hrafsson, fyrrum formaður Félags fréttamanna á Rúv, segir í samtali við Hringbraut að hann hafi aðeins rétt náð að kynna sér hinar nýjar siðareglur Rúv og ekkert heyrt um þær fjallað. Fyrstu viðbrögð hans séu að það sé mjög ankannalegt að takmarka á einvern hátt möguleika þeirra einstaklinga sem innan Rúv séu að störfum til að tjá persónulegar skoðanir á samfélagsmiðlum eða öðrum vettvangi. \"Það er almenn skynsemi að blaða- og fréttamenn blandi ekki skoðunum saman við fréttaskrif, það þykir t.d. ekki góð latína að sami maður sé í bullandi stjórnmálastarfi og á blaðamennsku á sama tíma. En þetta snýst ekki um það,\" segir Kristinn og bendir á að samkvæmt hans reynslu hafi flestir þeirra fréttamanna sem hafi haft pólitískan bakgrunn áður en þeir hófu störf sem fréttamenn á Rúv komið inn í starfið með tengsl við Sjálfstæðisflokkinn.

Hringbraut hefur aðeins fengið viðbrögð frá einum starfsmanni Ríkisútvarpsins sem segir að rótanna að þessari breytingu sé að leita í menntamálaráðuneytinu. Nýju siðareglurnar séu Illuga Gunnarssyni mikið kappsmál. Hringbraut hefur falast eftir viðbrögðum bæði frá Illuga mennta- og menningarmálaráðherra sem og núverandi formanni Félags fréttamanna hjá Rúv en ekki enn fengið svör.

Mikill hiti er í starfsmönnum Rúv vegna málsins eftir því sem Hringbraut hefur fengið staðfest.

 

Uppfært kl. 19:39: Alþjóðleg samtök um tjáningar- og upplýsingafrelsi hafa fordæmt hinar nýju siðareglur Rúv.