Skríll eða meinlausir landsmenn

Fréttamiðlar í Þýskalandi skrifa um ólætin í Hamborg í liðini viku. Þúsundir borgarbúa í Hamborg hlýddu kalli um að koma að hreinsa til eftir mótmælin og hafa þeir unnið við að sópa og þvo frá því á laugardag og eru enn að þegar þetta er skrifað.

Mikið sorp hlóðst upp á afmörkuðu svæði þar sem mótmælendur höfðu sig mest í frammi. Nokkuð var um eignspjöll því kveikt var í bílum og búðum og nokkuð var um gripdeildir.

Veggjakrot á mörgum þjóðtungum mótmælenda er áberandi og vekur rétt stafsetning og góð setningaskipan eftirtekt. Þykir þetta bera vott um góða grunnmenntun mótmælenda.

Lengi vel loguðu eldar á stöku stað en mótmælendur kveiktu varðelda úr því efni sem þeim féll til eins og borðum og bekkjum og sorpi úr tunnum.  

Fréttaskýrendur þýskra fjölmiðla ræða þá spurningu hverjir voru þarna að verki og sýnist sitt hverjum. Sumir kalla mótmælendurnar dreggjar þjóðfélagsins og trantaralýð. Aðrir grípa til gamalkunnugra briglsa um að þarna hafi verið á ferð öfga vinstrimenn. Stöku fréttsskýrendur eru nógu kjarkaðir til að segja blákalt að þarna voru á ferð \"börnin okkar - börnin sem við ólum svona illa upp.\"   

Lögregluyfirvöld segja að skýrslutaka af þeim mótmælendum sem handteknir voru sýni að þetta séu tæpast réttar lýsingar á mótmælendunum. Sumir hafi verið góðglaðir og aðrir hýrir af dópi. Allir komi þeir frá góðum heimilum innan sem utan Þýsklands. Sjónvarpsupptökur gefi nokkuð bjagaða mynd af mótmælendum.

Persónuskilríki sýni að mótlmælendurinir komu víða að og eiga lögheimili bæði í Þýsklalandi og grannríkjum eins og Hollandi og Frakklandi og Póllandi. Samband var haft við aðstandendur. 

Niðurstaðan er líkast til - meinlausir landsmenn geta auðveldlega breyst í skríl. Einkum ef þeir meinlausu.landsmenn eru bara krakkar.

Borgarbúar í Hamborg sýna sitt rétta andlit og mæta til hreinsunarstarfsins þúsundum saman og aðstandendur handtekinna mótmælenda borga sektir og lögmannsþóknanir.  

 

Nánar www.dw.com

[email protected]