Skrifum endilega fleiri skýrslur

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er gestur í þætti Jóns G. á Hringbraut í kvöld. Hún ræðir íþyngjandi veiðigjöld á sama tíma og staðan í greininni hafi hríðversnað. Hún undrast skilningsleysi þingmanna og stjórnvalda á vanda atvinnugreinarinnar. Hún skrifaði á dögunum pistil í Viðskiptablaðið þar sem hún sagði að fyrir ári hefðu þáverandi sjávarútvegsráðherra og þáverandi formaður atvinnuveganefndar Alþingis talið nauðsynlegt að fram færi úttekt á rekstrarstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi. Síðan hefur ekkert gerst. Skrifum endilega fleiri skýrslur, segir Heiðrún Lind.