Skriftstofa boðar fund

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mun eiga fund með forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á Bessastöðum á morgun laugardag 16. september klukkan ellefu árdegis. Bjarni ætlar að boða til alþingiskosninga sem allra fyrst og helst í nóvember. Bjarni segir það hafa komið sér í opna skjöldu í gær þegar Björt framtíð ákvað að slíta stjórnarsamstarfinu.