Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra - og fjármálaráðherra - spyr hvað forseti Íslands muni gera að morgni Gamlársdags þegar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra biður hann um að árita fjárlögin - og þar með samþykkja inntak þeirra.
Hnútukast Bjarna í garð Ólafs Ragnars vegna orða forsetans um óskiljanlega fátækt á Íslandi var aðalefni jólaboðanna í ár. Þorsteinn spyr hvort forsetinn muni skrifa undir fjárlögin sem neiti öryrkjum og lífeyrisþegum um afturvirkar kjarabætur í ljósi umtalaðra orða sinna.
\"Á gamlaársdagsmorgun kemur ríkisráðið saman á Bessastöðum. Þar mun fjármálaráðherra leggja tvö skjöl fyrir forseta varðandi fjárlög næsta árs. Það fyrra er tillaga um að forseti fallist á efni fjárlaganna eins og meirihluti Alþings hafði samþykkt þau. Það síðara er frumvarpið sjálft,\" skrifar Þorsteinn, margreyndur við þessar aðstæður.
\"Þegar forseti Íslands hefur ritað með eigin hendi á tillögublað fjármálaráðherra að hann fallist á tillögu hans undirritar forsetinn einnig lagatextann. Stríði efni frumvarpsins gegn skoðunum eða samvisku forsetans eða hann telur að gjá sé milli þings og þjóðar um efni þess neitar hann að fallast á tillöguna og undirritar ekki frumvarpið. Það verður eigi að síður að lögum en þjóðin fær að hafa síðasta orðið um áframhaldandi gildi þeirra,\" skrifar Þorsteinn - og hér er nægt lesefni milli línanna.
\"Hvort heldur menn velta fyrir sér merkingu orða forsetans í sjónvarpsviðtalinu frá sjónarhorni textafræði eða stjórnskipunarfræði,\" skrifar hann æafram \"þarf enginn að grufla út í efni þeirra eftir gamlaársdagsfundinn í ríkisráði. Hafni forsetinn tillögu fjármálaráðherra fer ekki milli mála að svarið í sjónvarpinu var hvöss gagnrýni og stuðningur við tillögu stjórnarandstöðunnar eins og spurt var um.\"
Þessi merkileega grein Þorsteins endar á þessum orðum. \"Fari mál aftur á móti svo á gamlaársdagsmorgun að forseti fallist á tillöguna og undirriti lögin hefur svarið af hans hálfu annað hvort ekki verið hugsað sem gagnrýni og stuðningur við tillögu stjórnarandstöðunnar eða hann hefur beinlínis dregið í land með þau orð sem féllu. Einu gildir hvort heldur er.
Fjármálaráðherra lýsti niðurstöðu fjárlagaumræðunnar einhvern veginn á þann veg að bestu niðurstöðu hefði verið náð miðað við aðstæður þótt vilji manna stæði alltaf til að gera betur. Hér skal því spáð að forsetinn undirriti fjárlögin á gamlaársdagsmorgun. Eftir það verður ekki unnt að leggja aðra merkingu í umtalað sjónvarpsviðtal við forsetann en fólst í þessum orðum ráðherra. Forsetinn getur nefnilega ekki fremur en fjármálaráðherra verið bæði með og á móti eigin fjárlögum.\"