Skrifar ekki einu sinni eigið nafn rétt

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku við HÍ, spyr spurninga um íslenskukunnáttu Menntamálastofnunar eða öllu heldur réttritun tungunnar eins og hún birtist hjá stofnuninni.

Forsaga máls er að Eiríkur fór í útvarpssjall til Óðins Jónssonar á Rúv við annan mann frá Menntamálastofnun en áður hafði Hringbraut birt tvær fréttir þar sem Eiríkur sagði höfundum samræmdu prófanna í íslensku til syndanna með rökstuddum dæmum.

Óðinn birti viðtalið á vef Ríkisútvarpsins og Menntamálastofnun deildi svo afurðinni á eigin fésbók. En þeirri miklu stofnun menntavísinda sem ber að standa vörð um íslenska tungu og hefur mikið látið að sér kveða í umræðu um læsi barna verður heldur betur á í messunni. Hvorki fleiri né færri en þrjár réttritunarvillur eru í annars þeim knappa texta sem sést á myndinni að ofan.

Eiríkur segist velta fyrir sér hvort fésbókarfærslur Menntamálastofnunar séu dæmigerðar fyrir vinnubrögðin þar á bæ.

„Í þessari stuttu færslu tekst stofnuninni að setja villur í föðurnöfn okkar Gylfa beggja, og skrifar ekki einu sinni sitt eigið nafn rétt.“