Einn stílfegursti penni íslenskra fagurbókmennta, Guðmundur Andri Thorsson var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál í gærkvöld og rakti þar sögu sína í föður- og móðurgarði á einstaklega heillandi máta.
Þátturinn verður endursýndur á stöðinni í dag, en það er afar áhugavert að hlusta og horfa á Andra segja frá uppeldisárunum í Karfavogi þar sem móðir hans, fyrsti kvenfréttastjóri ríkisfjölmiðils á Norðurlöndunum, sýndi hagsýni sína í hvívetna milli þess sem hún skrifaði bækur húsbóndans upp í tómstundum, en heimilisfaðirinn, kominn af Thorsurunum miklu, skóp skáldverk sín alla jafna fram eftir nótti, ef hann var ekki að leiðsegja löndum sínum um suðræn lönd - og vaknaði helst ekki fyrr en undir hádegi næsta dag þegar andinn var yfir honum.
Það kom svo í hlut Andra sjálfs að skrifa upp bækur Thors Vilhjálmssonar þegar móðir hans Margrét Indriðadóttir hafði ekki lengur tíma til þess sakir anna í Útvarpinu, en þar varð til grunnurinn að síðari tíma skrifum sonarins - sem enn er þó í raun að sann að velta því fyrir sér hvort hann eigi að gerast rithöfundur.
Sem er kannski undarlegt í ljósi þess að hann á um þessar mundir 30 ára rithöfundaafmæli, Mín káta angist kom út 1986 - og eftir það hefur hann verið kunnur af bókum sínum og skrifum, ekki síst beittum dálkaskrifum í Fréttablaðinu á síðustu árum þar sem hann virðist alltaf vera jafn gáttaður á þjóðfélagi sínu. Svo skemmtilega vill til að einmitt í gærdag, þegar Andri lét ljós sitt skína í Mannamáli á Hringbraut, gaf hann út fyrstu ljóðabók sína, Hæg breytileg átt, en þar er að finna safn hans af þeim knappa ljóðstíl sem hækur heita.
Og hann er raunar ekki einhamur þessi dægrin, því eins og fram kemur í þættinum er hann að setja upp sýningu á Söguloftinun í Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem hann segir sögu langafa síns, Thors Jensen sem kom hingað til lands aðeins fjórtán ára gamall eftir verslunarnám í Danmörku og markaði djúp spor í sögu landsins um og upp úr þarsíðustu aldamótum og var í raun og sann landnámsmaður í mörgum skilningi. Guðmundur Andri verður í hlutverki sögumannsins á þessum sýningum sem hefjast annaðkvöld í þessu rómaða menningarsetri Vesturlands, en það var leikstjórinn og staðarhaldarinn Kjartan Ragnarsson sem hvatti hann til þessa verks, enda væri hér um eina af helstu óskrifuðu sögunum hans að ræða. .
Viðtal Sigmundar Ernis við Andra í kvöld er lifandi, mannlegt og skemmtilegt - og opnar áhorfendum sérstakt heimilið í Karfavogi forðum daga upp á gátt, en það verður sem fyrr segir endursýnt í dag og um helgina.