\"Það er frábært að fá svona veður,\" sagði einn aðstoðarmanna við hasarmyndina Furious 8 þegar blaðamann Hringbrautar bar að garði við tökusvæði myndarinnar í Mývatnssveit.
Gamli fótboltavöllurinn við Álftabáru sunnan Mývatns milli Álftagerðis og Skútustaða, þar sem vonir heimamanna kviknuðu stundum fyrir leiki að berja á Völsungum frá Húsavík en dóu oftast þegar á hólminn var komið, er nú vígvöllur frá Hollywood. Völlurinn er fullur af alls konar búnaði sem nýttur verður milli átaka góðs og ills áður en afurðin verður sýnd í bíóhúsum. Úti á ísnum fyrir framan Álftabáruna mátti í gær m.a. líta appelsínugulan Lamborghini og skriðdreka. Herbílar stóðu nokkur hundruð metra í burtu vörð við Selið.
Á Mývatni hefur farið gríðarlegur tími við að skafa snjó af ísnum. Þar hafa bæði stór svæði verið rudd sem og einstaka brautir. Ísinn var heiðblár í gær í sólskininu og urriðar og bleikjur vomuðu undir. Þótt ljósmyndarar séu fremur illa séðir og mikil öryggisgæsla nálægt tökustað tókst blaðamanni Hringbrautar að taka myndina sem sést hér að ofan. Ein stærsta sprenging við kvikmynd hér á landi verður gerð bráðlega en þar fá fiskar í Langavatni að fjúka þegar ís á því vatni verður sprengdur. Vegna verndar sem umleikur Mývatnssveit, vegna einstæðrar náttúru og lífríkis, verður mýtvensku bleikjunni þyrmt. Fulltrúi frá Umhverfisstofnun sér daglega til þess að allt fari eftir settum reglum í sveitinni.
Blaðamaður ók hringinn í kringum vatnið í leiit að viðburðum. Varð ekki betur séð en að nokkrir tökustaðir væru virkir. Snjósleðar þutu víða um ísinn og ýmis framandi ökutæki fóru hratt yfir. Stemmningin var harla óraunveruleg miðað við þann frið og fámenni sem Mývatnssveit hefur verið þekkt fyrir á þessum árstíma en það koma peningar í kassann.
Hundruð manna starfa að verkefninu, gistipláss er fullnýtt. Skotið hefur verið á að tekjur heimamanna af verkefninu hlaupi á tugum milljóna og að alls muni kvikmyndatakan skilja eftir sig hundruð milljóna króna í íslenska þjóðarbúinu.