Skrefinu lengra: snædís kynnir sér námskeið í félagsfærni og kfum sumarbúðirnar

Annar þáttur af Skrefinu lengra verður á dagskrá Hringbrautar á sunnudaginn klukkan 21:00. 

Snædís fer á fund þeirra Ingibjargar og Guðrúnar sem eru með námskeið fyrir börn & ungmenni sem eflir þau í félagsfærni. 

Félagsfærni er gríðarlega mikilvæg í mannlegum samskiptum og hingað til hefur ekki verið hægt að sækja sér námskeið til að efla einstaklinga sem hafa jafnvel farið á mis við hinar óskráðu reglur félagslegra samskipta.

KFUM eru með sumarbúðir víðs vegar um landið. Elstu búðirnar eru Vatnaskógur sem margir þekkja til. Snædís fór í Vatnaskóg og talaði við Ársæl Aðalbergsson, eða Sæla, eins og hann er gjarnan kallaður. Sæli hefur verið í Vatnaskógi í áraraðir og segja má að svæðið hafi stækkað og dafnað. 

Bros var á hverju andliti í Vatnaskógi og gaman er að heyra Sæla fara yfir sögu Vatnaskógar. 

Skrefinu lengra er sýndur á sunnudögum klukkan 21:00 og endursýndur á þriðjudögum kl 21:00.