Skrefinu lengra í kvöld: snædís heimsækir faxaból og gt akademíuna

Í þætti kvöldsins af Skrefinu lengra heimsækir Snædís Snorradóttir reiðskólann Faxaból og GT Akademíuna.

Faxaból

Reiðskólinn Faxaból hefur starfað í 19 ár og hefur haldið úti námskeiðum og sumarstarfi fyrir börn á og í kringum grunnskólaaldur. Með stóran flota af hestum og aðstöðu á besta stað ásamt öflugu starfsteymi mynda þau einstaka stemningu fyrir börn sem mörg hver eru að fara á bak í fyrsta skiptið.

„Mörg barnanna koma aftur og aftur, ár eftir ár og stundum á nokkur námskeið yfir eitt sumar,“ segir Ellý Tómasdóttir, en Ellý og Rúna Tómasdóttir systir Ellýjar reka skólann í sameiningu. Námskeiðin sem boðið er upp á eru fyrir byrjendur sem og lengra komna. 

GT Akademían

GT Akademían er í eigu Hinriks Haraldssonar, en Hinrik hefur starfað í árabil í kringum tölvuleiki og er sérstakur áhugamaður bílatölvuleikja. Hinrik rakst á kappaksturshermina fyrir tilviljun og sá að þetta vantaði á Íslandi.

Nokkrum mánuðum síðar opnaði hann GT akademíuna þar sem einstaklingar, hópar, börn, rallý ökumenn og jafnvel verkfræði háskólanemar sem eru að smíða formúlu bíla koma og æfa sig í akstri. 

Í herminum getur þú keyrt margar af flottustu kappakstursbrautum heims og ræður veðrum, vindum og skilyrðum brautarinnar. GT akademían er með gríðarlega vinsæl námskeið fyrir börn og ungmenni. 

Skrefinu lengra er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 21:00.