Skrefinu lengra hefjast miðvikudaginn 4. september

Um ræðir fjóra þætti að þessu sinni þar sem starfsemi Hringsjá, Ferðafélags íslands, Lean Ráðgjöf, Íslenskra fjallaleiðsögumanna, Rauða krossins, Retor, Kvan og Bataskóla Íslands er skoðuð. 

Í fyrsta þætti ræðir Snædís við Leif Örn, eiganda íslenskra fjallaleiðsögumanna, um úrval ævintýra-, göngu-, hlaupa-, hjóla,- og fjallaferða sem Leifur fer í með hópa á ótrúlegar slóðir víðs vegar um heiminn. 

Snædís fer einnig í Hringsjá sem er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. 

Missið ekki af fræðandi og skemmtilegum þáttum.

Skrefinu lengra er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 á miðvikudögum.