Skrefinu lengra hefja göngu sína að nýju á Hringbraut sunnudaginn 30. júní. Í þessum skemmtilegu og fræðandi þáttum mun Snædís Snorradóttir dagskrárgerðarkona kynna fyrir áhorfendum afþreyingu sem stendur börnum til boða í sumar.
Snædís mun koma víða við og skoða allt það fjölbreytta sem stendur börnum til boða. Á meðal þess sem hún mun skoða í þáttaröðinni er:
Reiðskólinn Faxaból, sem er reiðskóli fyrir börn á öllum aldri,
GT akademían, sem býður upp á akstursnámskeið fyrir krakka með því að notast við akstursherma, sem er nýjung á Íslandi,
Útivistarskóli skáta, sem er með gríðarlega stórtæka starfsemi víðs vegar um höfuðborgarsvæðið,
PEERS félagsfærni, sem býður upp á námskeið fyrir börn og foreldra þeirra til að efla þau og styrkja í félagslegum samskiptum,
KFUM og KFUK sumarbúðirnar, þar sem tekið er á móti hundruðum barna yfir sumartímann,
Sundfélag Hafnarfjarðar, sem er með öflugt sundstarf allt árið um kring en taka á móti yngstu kynslóðinni á sumrin,
Myndlistaskóli Kópavogs, sem er með fjölbreytt listanámskeið fyrir alla aldurshópa en leggja mikið upp úr grunn listakennslu fyrir börn á skemmtilegum sumarnámskeiðum.
Þættirnir af Skrefinu lengra verða alls þrír talsins og verða á dagskrá Hringbrautar á sunnudögum klukkan 21:00.