Skrapp út

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson rétt skrapp út um daginn og fór um landið. Þar komst hann að því að það ætti ekki að kjósa núna í haust vegna þess að svo stór mál eru óafgreidd og engri annarri ríkisstjórn sé treystandi til þess að klára þau. Nú fylkjast framsóknarþingmenn að baki honum, líkt og Gunnar Bragi Sveinsson og segja þetta rétt. Afgreiðsla tiltekinna mála sé skilyrði fyrir kosningum. Sigurður Ingi og Bjarni Ben hafa hins vegar fundað með forseta Alþingis um þingrof núna í haust og það hefur Sigurður Ingi í hendi sér með samþykki forseta og enginn annar. Sjálfstæðisþingmenn segja að það sé skýrt að kjósa eigi nú í haust. Allt er komið í ferli og prófkjör haldin. Hvaða pólitíska umboð hefur Sigurður Ingi samt eiginlega? Var það svo að hann bara rétt skrapp inn í stjórnarráðið á meðan Sigmundur rétt skrapp út vegna vantrausts? Þingmenn Framsóknar hafa tvo leiðtoga að elta, forsætisráðherrann sinn og varaformann flokksins eða formanninn sinn. Nú verður Sigurður Ingi að sýna hvers megnugur hann er.  Hann verður eiginlega að slíta sig lausan frá formanni flokksins, í það minnsta fjarlægjast hann til að standa við orð sín og halda haus gagnvart samstarfsflokknum og almennt út á við. Um leið gæti hann misst öll tengsl við þingmennina í flokknum. Þeim hópi fer Ásmundur Einar Daðason fyrir sem þingflokksformaður og fyrrum aðstoðarmaður Sigmundar. Höskuldur Þórhallsson þingmaður fyrir norðan hefur þó stigið fram og mótmælt Sigmundi Davíð og segir hann hættulegan samstarfi Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins.