Minnst 1500 íbúðir eru leigðar út í borginni á Airbnb en ranglega skráðar sem eingöngu heimagisting. Minnihluti íbúa sem leigðar eru út á Airbnb eru með tilskilin leyfi og rétt skráðar.
Þetta kemur fram í nýrri greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs sem nær til fyrstu níu mánaða ársins. Um er að ræða efri leiguflokk eða íbúðir sem eru leigðar umfram 90 daga á ári eða 2 milljónir. Í þessum tilfellum flokkast leigan undir atvinnustarfsemi og henni fylgja mun meiri kröfur en þegar leigan er undir þessum mörkum. Til dæmis þarf að fá heilbrigðisvottorð heilbrigðiseftirlits, greiða hærri fasteigna gjöld og fá samþykki byggingafulltrúa.
Ólafur Heiðar Helgason hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði, sagði í þættinum Þjóðbraut í gær að það hefði komið á óvart hve skráningunum sé mikið ábótavant.
Lítil yfirsýn virðist vera yfir Airbnb leiguna hér á landi sem er langmest í borginni. Reikna má með að Reykjavíkurborg verði af hátt í milljarð króna í tekjur vegna þessa.
Fasteignagjöld vegna atvinnuhúsnæðis eru mun hærri en fasteignagjöld af íbúðahúsnæði í flestum sveitarfélögum, þ.m.t. Reykjavík. Gjöldin hækka um 600 þúsund krónur á ári fyrir meðalíbúð í 101 Reykjavík
Áhrifin á framboð húsnæðis eru ótvíræð þar sem öruggt er að í sumum tilfellum fái húsnæðiseigendur meiri leigutekjur af Airbnb þar sem eftirfylgni með skráningu er of lítil.
Í greiningu Íbúðalánasjóðs kemur fram að aðeins 1200 Airbnb íbúðir séu réttilega skráðar sem atvinnuhúsnæði. Um 1700 rekstrarleyfi hafa verið gefin út af 2600 Airbnb íbúðum, og getur eitt leyfi átt við fleiri en eina íbúð, segir í greiningunni.