Skráður á eyðibýli – flytur í 300 fm

Forsætisráðherra þjóðarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, flytur nú fyrir jólin í 325 fermetra einbýlishús við Skrúðás í Garðabæ.

Frá þessu segir visir.is

Sigmundur Davíð flutti lögheimili sitt á eyðibýli að Hrafnabjörgum áður en hann fór fram sem oddviti framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.

Á Vísi kemur fram að nýja heimili Sigmundar sé samkvæmt fasteignaskrá í eigu tengdaforeldra forsætisráðherra, þeirra Páls Samúelssonar og Elínar Sigrúnar Jóhannesdóttur.

Sigmundur Davíð flytur frá Seljahverfinu í Breiðholti með eiginkonu og barni.

Sigmundur Davíð komst einnig í fréttir fyrr á árinu vegna annarra breytinga á persónuhögum hans sem orðið hafa síðan hann tók við sem forsætisráðherra. Austurfrétt greindi frá því að opinber gjöld forsætisráðherra hefðu lækkað um 9 milljónir króna eftir að hans eigin ríkisstjórn afnam auðlegðarskatt en fylgdi þar áætlun fyrri stjórnar.