Skotsvæði um áramót á þremur stöðum

Skotsvæði fyrir flugelda verða afmörkuð á Skólavörðuholti, Klambratúni og Landakotstúni á gamlárskvöld. Á þessum stöðum hefur safnast saman mikill mannfjöldi  ár hvert og með þessu er verið að draga úr hættu á slysum af völdum skotelda. Gæsluliðar verða á svæðunum frá kl. 22 - 01.Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Skólavörðuholt verður að hluta lokað akandi umferð í samráði við lögregluna til að tryggja betur öryggi íbúa og gesta á svæðinu. 

„Við hvetjum íbúa og gesti til að sýna aðgát og virða leiðbeiningar,“ segir Björg Jónsdóttir verkefnisstjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg, sem heldur í ár utan um skipulagningu. Hún bætir við:

„Upphaflega hugmyndin um afmörkuð skotsvæði er komin frá íbúum borgarinnar og hefur Sjóvá staðið við bakið þeim.“

-