Skotland skal enn á ný kjósa

Þing skosku heimastjórnarinnar heimilar þjóðaratkvæðagreiðslu um fullveldi og sjálfstæði. Sameinað konungdæmið er þar með enn á ný að glíma við Skota. Blöð á Stóra - Bretland skrifa í morgun um þessa akvörðun skosku heimastjórnarinnar. Eru mjög skiptar skoðanir um þessa heimild. Horft er til Norður Írlands en þar eru deildar meiningar um Brexit áform bresku ríkisstjórnarinnar og eru sumir leiðtogar á Norður Írlandi á því að ráðlegt sé að Norður Írar íhugi nú af fullri alvöru sameiningu við Eire þ.e. Írska lýðveldið. Þar með væri Sameinaða konungdæmið bútað í sundur og England og Wales stæðu eftir.