Skotið af byssum í grennd við tý

Skipverjar á varðskipinu Tý, sem nú er í leiguverkefni á flóttamannaslóðum á Miðjarðarhafi, urðu vitni að því þegara smyglarar sem sérhæfa sig í að koma fólki þvert yfir hafið frá Afríku til Evrópu, skutu af byssum sínum og tóku bát í tog sem flóttafólki hafði skömmu áður verið bjargað úr. Týr hafði skömmu áður tekið þátt í björgun fólksins, að því er segir í fréttatilkynningu frá Frontex, landamærastofnun Evrópu.


Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar er greint frá því í dag að áhöfn Týs hafi heyrt skothvellina en það var statt tæpa sjómílu frá dráttarbátnum. Áhöfnin fylgdist því með atburðarrásinni úr fjarlægð. Atvikið hafi átt sér stað eftir að ítalskt björgunarskip og Týr, skip landhelgisgæslunnar hafði bjargað tvöhundruð og fimmtíu manns sem voru um borð í báti. Eftir að fólkið var komið um borð í ítalska skipið hafi menn á hraðbátum birst og siglt í átt að skipunum og skotið úr byssum sínum upp í loftið. Þeir hafi síðan komið taug í dráttarbátinn og tekið hann með sér, og er það sagt til merkis um að smyglararnir séu að verða uppiskroppa með báta.  


Talið er að hundruð flóttamanna hafi drukknað undan ströndum Líbíu síðustu daga í tilraunum sínum til að komast yfir hafið.