Tilkynnt var um skothríð í sporvagni í miðborg Utrecht í Hollandi í morgun. Skotið var á fólk af handahófi og hefur lögreglan í borginni tilkynnt að hið minnsta einn er látinn og að fjöldi fólks hafi særst. Sögum ber ekki saman um hvort árásarmaðurinn hafi verið einn eða tveir en lögreglan hefur ekki handtekið neinn ennþá. Pressan.DV.is greinir frá.
Hryðjuverkadeild lögreglunnar var send á vettvang og ekki er talið útilokað að um hryðjuverk sé að ræða. Fjölmennt lögreglulið leitar nú að árásarmanninum eða -mönnunum.
Eftir neyðarfund ríkisstjórnar landsins var ákveðið að hækka hættustig vegna hryðjuverka á hæsta stig í Utrecht og nágrenni borgarinnar. Skólum í borginni hefur verið fyrirskipað að halda börnum innandyra og læsa öllum inngöngum.
Öryggissráðstafanir hafa sömuleiðis verið hertar í öllum helstu borgum landsins.