Að því er fram kemur á ruv.is, sem fjallar um málið í dag, eru Skotarnir með opna vefsíðu um ferðalagið þar sem þeir státa sig af utanvegaakstri og af því að hafa hafa keyrt inn á mitt Holuhraun með því að stelast 12 km langa leið á hrauninnu. Lögreglan á Húsavík vissi ekki af ferðalagi mannanna en hefur nú hafið rannsókn á málinu.
Mennirnir eru á þrítugsaldri og heita Matthew McHugh og Rhys Rowlands. Þeir eru fyrrverandi hermenn, annar hætti í hernum vegna hjartavandamáls en hinn slasaðist á fæti í Afganistan. Þeir segjast bera mjög sterkar taugar til hersins.
Leiðangur sinn nefna þeir Ragnarök. Þeir kenna sig við eldfjallaveiðara og segja frá leiðangrinum á vefsíðunni www.operation-ragnarok.co.uk. Þar segja þeir frá bifreiðinni sem er mikið breyttur Mitcubishi L200 jeppi með stórum hjólbörðum. Á síðunni er líka spjallþráður. Þar bendir maður að nafni Hákon þeim á að utanvegaakstur sé ólöglegur á Íslandi. Þessari athugasemd hafa þeir enn ekki svarað.
Í nýjustu færslunni á heimasíðunni segja þeir félagar frá ferð sinni um hálendi Íslands og Holuhraun. Þar segjast þeir hafa stolist 12 km ófæra leið inn að miðju hrauninu. Þar hafi þeir farið í gegn um hættulegar eiturgufur sem enn stigi upp af nýa hrauninu.
Leiðangurinn er farinn í góðgerðarskyni en þeir óska eftir fjárframlögum á heimasíðunni til styrktar Poppy Scotland sem styður við fyrrum hermenn og þá sem hafa særst á vígvellinum.
Lögreglan á Norðausturlandi vissi ekki um ferðir mannanna þegar fréttastofa RÚV leitaði til hennar í dag. Aðalsteinn Júlíusson, lögregluvarðsstjóri á Húsavík, segir málið í skoðun. Verið sé að rannsaka í samvinnu við landverði hjá Vatnajökulsþjóðgarði og vakthafandi lögreglumenn uppi í Dreka hvort einhver verksummerki séu eftir mennina.