Skoski þjóðarflokkurinn

Flokkurinn hefur fullveldi og sjálfstæði Skotlands að leiðarljósi. Skoski þjóðaflokkurinn er stærsti stjórnmálalfokkur Skotlands. Flokkurinn var stofnaður árið 1934.

Fyrsti ráðherra Skotlands og leiðtogi flokksins Nicola Sturgeon segir flokkinn nú gera skilyrðislausa kröfu um nýjar kosningar um sjálfstæði Skotlands um leið og niðurstöður samningaviðræðna Stóra-Bretlands og Evrópusambandsins (ESB) eru kunnar.

Hún segir of mikið í húfi fyrir Skotland og ekki komi því til greina að niðurstöðum Brexir viðræðna Breta og ESB verði troðið upp á Skota eins og Nicola Sturgeon orðar þetta.

rtá