Skordýr hafa fundist í poppmaís frá Coop. Um er að ræða 500g einingu sem merkt er með best fyrir dagsetningunni 22.10.2019. Samkaup hefur innkallað vöruna úr verslunum og frá neytendum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.
Í febrúar hefur Matvælastofnun einnig tilkynnt um að skordýr hafi fundist í Sólgæti döðlum frá Heilsu ehf. og sömuleiðis fundust skordýr í haframjöli frá First Price. Báðar vörur hafa verið innkallaðar af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.