Skora á þorgerði katrínu

Skorað er á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi á laxi.

Að baki áskoruninni eru margir hagsmunaaðilar í veiði, hvalaskoðun, útivist og sjómennsku. sjókvíaeldi á laxi. Í henni segir meðal annars: 

„Við undirrituð tökum heilshugar undir efasemdir þínar um fyrirhugað sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði. Einnig lýsum við yfir ánægju með ummæli þín þar sem þú segist vilja gæta varúðar og verja náttúruna gegn umhverfisspjöllum af völdum laxeldis í sjó.

Þar kemur fram að fyrirhugað risaeldi á 10 þúsund tonnum af laxi myndi spilla hreinni ímynd fjarðarins. Það myndi skaða hagsmuni ferðaþjónustu, valda smábátaeigendum búsifjum, bitna harkalega á villtum Atlantshafslaxi sem gengur í ár á svæðinu og að öllum líkindum eyða sjóbleikjustofnum í Eyjafirði. Bent er á að nú þegar hafi Faxaflói, Breiðafjörður, Húnaflói, Skagafjörður, Skjálfandaflói, Þistilfjörður, Bakkaflói, Vopnafjörður og Héraðsflói verið friðaðir.

 Undir áskorunina skrifa: hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador, Bergmenn fjallaleiðsögumenn, Klettur félag smábátaeigenda og veiðifélög Svarfaðardalsár, Hörgár, Eyjafjarðarár, Fnjóskár, Laxár í Aðaldal, Skjálfandafljóts, auk Stangveiðifélagsins Flúða, Flugunnar á Akureyri og Stangaveiðifélags Akureyrar.