Sett hefur verið á legg Facebook-síða þar sem skorað er á Höllu Tómasdóttur, frumkvöðul, fjárfesti, fyrrum stjórnarformann Auðar Capital og ráðstefnustjóra Inspirally WE-ráðstefnunnar sem haldin var fyrr á þessu ári, að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands næsta sumar.
Á síðunni segir m.a.: \"Við skorum á Höllu Tómasdóttur að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. Höllu fylgir bjartsýni og áræðni, hún er verðugur fulltrúi þjóðarinnar\".
Halla hefur um árabil verið framarlega í flokki íslensks athafnafólks og þykir koma vel fyrir, en hún býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á íslensku samfélagi og viðskiptalífi og hefur aflað sér þar reynslu á erlendum vettvangi.