Töluverður þrýstingur hefur skapast á Andra Snæ Magnason rithöfund að hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands næsta ár.
Meðal annars hefur verið stofnuð facebook-síða til stuðnings Andra Snæ. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata er meðal þeirra sem hafa lýst velþóknun á hugmyndinni með því að „læka“. Heimildir Hringbrautar herma að fleira fólk með hugsjón fyrir samfélaginu hafi beðið Andra Snæ að íhuga málið alvarlega.
Í samtali við Hringbraut vildi Andri Snær ekkert gefa upp.
Ein heimild nálæg Andra Snæ segir að hugmyndin hafi þróast úr því að „hann hafi fyllst kinnroða yfir hugmyndinni yfir í að Andri sé nú í fullri alvöru að vega og meta hvaða áhrif staða forseta Íslands gæti haft á sköpun hans og list og með hvaða hætti forsetaembættið gæti orðið samfélaginu til góðs“. Helsta fyrirstaðan gegn því að hann færi fram sé e.t.v. sú að hann hafi sjálfur ekki enn komist að þeirri niðurstöðu hort hann geti hugsað sér að fórna þeim tíma í embættið sem hann hafi séð fyrir sér að verja í skriftir, ef svo færi að hann bæri sigur úr býtum. Í því samhengi er minnt á að Jón Gnarr, sem talinn var heitur fyrir Bessastöðum um tíma, sagði í viðtali að ef maður væri forseti Íslands gerði maður sennilega ekkert annað.
Úr annarri átt er staðhæft að Andri Snær velti alvarlega fyrir sér annars vegar hvaða fórnir gætu fylgt kosningabaráttunni og hins vegar til hvaða góðu verka nýta mætti forsetaembættið fyrir land og þjóð.
Andri Snær hefur verið þýddur á 35 tungumál, hefur lesið upp fyrir hartnær 100.000 börn víða og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Barátta hans fyrir náttúruvernd er hverjum Íslendingi kunn og langt út fyrir landsteinana. Þegar hann hlaut eftirsótt verðlaun árið 2010 sem Alfred Toepfer stofnunin í Hamborg veitti, sagði í umsögn: \"Dómnefndin byggði val sitt meðal annars á því að Andri Snær sem höfundur stillir sér ekki upp sem hlutlaus áhorfandi heldur sem beinn þátttakandi í samfélaginu.\"
Andri Snær var nýverið gestur fréttaskýringaþáttarins KVIKAN á Hringbraut og ræddi þar m.a. mikilvægi aktívisma og að næsta barátta væri að friða hálendi Íslands.
Skoða má stuðningsmannasíðu Andra Snæs á facebook hér.