Skora á ólaf ragnar að hætta

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, er í hópi þeirra sem styðja undirskriftasöfnun sem nú þegar hefur verið hrundið af stað á Netinu þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að hætta.

Tæplega 500 manns hafa sett nöfn sín undir undirskriftasöfnuna á þeim skamma tíma sem liðinn er frá ákvörðun Ólafs sem kynnt var á fundi fyrr i dag. Hnn er hættur við að hætta og gefur kost á sér í 6. skiptið til forsetaembættis sem þýðir að hann mun sitja í embætti í 24 ár ef þjóðin kýs hann.

Enginn bað þig um að halda áfram, segir í áskoruninni.

\"Kæri Ólafur.  Við skorum á þig að hætta við að bjóða þig fram til embættis forseta Íslands.  Nú er komið nóg,\" segir í texta með söfnuninni.

Á blaðamannafundi á Bessastöðum vísaði Ólafur Ragnar til mikils stuðning og hvatningar frá þjóðinni að hann yrði að halda áfram sem forseti.

Með ákvörðun sinni hefur forseti Íslands hleypt nýju blóði í umræðu um breytingar á stjórnarskránni eftir því sem fram kemur víða á samfélagsmiðlum.