Stjórn Samtaka ferðaþjónsustunnar (SAF) fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að skipa þverpólitíska nefnd til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni til framtíðar. SAF segja þessa ákvörðun vera í samræmi við eðlilega starfshætti ríkisstjórnar árið 2017. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn SAF sem send var út í dag.
Þegar fjármálaráðherra og ferðamálaráðherra tilkynntu áform ríkisstjórnar Bjarna Bendiktssonar um að auka álögur á íslenska ferðaþjónustu sem nema fjórföldu núverandi veiðileyfagjaldi var það gert fyrirvralaust og án þess að nokkurt samráð eða fagleg greining á afleiðingum þeirrar ákvörðunar fyrir atvinnugreinina hefði farið fram.
SAF vona að fordæmi sjávarútvegsráðherra verði ferðamálaráðherra hvatning til þess að nálgast þetta verkefni með sama hætti og hafi í huga ummæli sjávarútvegsráðherra í nýrri blaðagrein um að \"mikilvægast er að við göngum öll til þessarar vinnu af heilindum og einsetjum okkur að mynda víðtæka og varanlega sátt.\"
Kallar hefur verið eftir nýjum og faglegum vinnubrögðum í íslenskum stjórnmálum og að unnið sé af heilindum segir í ályktun stjórnar SAF.
Stuðlað verður að því að ekki fari eins fyrir ferðaþjónustunni og íslenskum sjávarútvegi sem styr hefur staðið um í áratugi. Halda þarf áfram að byggja upp íslenska ferðaþjónustu í sátt í stað þess að hafa sundrungu að leiðarljósi.
Það er auðvelt segir í ályktun stjórnar SAF að eyðileggja þann árangur sem náðst hefur í ferðaþjónustunni. Það er líka auðvelt að vinna að sátt.
Líkt og sjávarútvegsráðherra segir í framangreindri blaðagrein: \"Það er á ábyrgð stjórnmálamanna dagsins í dag að búa í haginn fyrir sátt til framtíðar.\"
rtá
Nánar www.saf.is