Skólum ekki lokað í reykjavík

Ekki er útlit fyrir að skólum í Reykjavík og næstu nágrannasveitarfélögum verði lokað í dag vegna bylsins sem nú ríður yfir landið, en þéttur skafrenningur lagðist yfir byggðina suðvestanlands á níunda tímanum í morgun.

Aðra sögu er að segja af skólahaldi á Vesturlandi, en þar liggur skólastarfi víða niðri af völdum veðurs.

Umferð er nú með minnsta á höfuðborgarsvæðinu og ljóst að fjölmargir hafa tekið mark á aðvörunum Almannavarna ríkisins sem sögðu í gær að ekkert ferðaveður yrði þegar liði á morguninn. Það virðist og vera að ganga eftir.

Lög­regla vill ít­reka fyr­ir fólki að vera ekki á ferðinni nema á öku­tækj­um sem út­bú­in eru fyr­ir vetr­ar­færð.