Skólinn, traffíkin og brosið

Brosandi börn með skólatöskur hafa verið áberandi í umhverfinu síðustu daga. Ekki að undra því skólarnir hafa hringt börnin inn úr lengstu frímínútum ársins, sumrinu. Það er alltaf spennandi að fara í næsta bekk og vera ennþá eldri en árið á undan því nú eru fleiri yngri börn komin í skólann. Svo auðvitað eru þau sem eru útskrifuð úr grunnskóla að stíga inn í menntaskóla og menntskælingarnir að halda á háskólabekk, margir hverjir. 

Allt er þetta mjög spennandi og margur búin að missa sig á sumarútsölunni til þess að vera sem lang smartastur fyrir veturinn eða gera börnin klár með polla-galla kaupum og baktryggja sig með kaupum á 7 pörum af vettlingum. 

Það sem við vinnandi fólk kvíðum einna helst er þó umferðin sem skólagöngunni fylgir. Sumartíminn er algjör lúxus á götum borgarinnar en nú jafnt og þétt fer umferðin að aukast til muna og mínúturnar í bílnum verða töluvert fleiri, í sumum tilfellum, þrefallt fleiri. 

Umferðin er óhjákvæmileg gott fólk og bílareiði og umferðarþunglyndi gerir engum gott. 

\"\"

Tökum því bara morgun kaffið í farandsbolla og leggjum fyrr af stað. Því þetta er allt saman partur af samfélaginu sem við lifum og hrærumst í, veifum börnunum okkar brosandi í skólann njótum bílatímans með útvarpið í botn. 

 **Snædís**