Í tilkynningu sem Háskólinn á Bifröst sendi frá sér í gær kemur fram að gæðaúttekt á skólanum sé lokið og að gæði kennslu og náms séu staðfest.
Nokkuð er liðið síðan Morgunblaðið sagði fyrst frá úttekt á gæðum náms við Háskólann á Bifröst. Þar kom fram að gæðaráð íslenskra háskóla, skipað fimm erlendum sérfræðingum, teldi að takmarkað traust væri gagnvart prófgráðum sem nemendur frá skólanum útskrifast með.
Forsvarsmenn Háskólans á Bifröst segja nú að allt ferlið hafi verið mjög gagnlegt fyrir skólann og verði til þess að bæta allt starf hans. Nemendur muni útskrifast úr enn betri skóla en áður. Skólinn hafi nú þegar brugðist við þeim athugasemdum sem fram koma í úttektinni með viðeigandi hætti en skólastjórnendur eru ósáttir við að efni skýrslu gæðaráðs skyldi leka út í sumar.
„Háskólinn á Bifröst ásamt Gæðaráði og Rannís harma þessa ótímabæru umfjöllun um efni skýrslunnar, sérstaklega þar sem starfsfólk Háskólans á Bifröst var þá bundið trúnaði um efni hennar og hafði ekki heimild til að svara efnislega spurningum frá fjölmiðlum. Umtalsverðar breytingar urðu á mati Gæðaráðsins eftir að athugasemdir bárust við skýrsludrögin frá Háskólanum á Bifröst og sú dökka mynd sem dregin var upp í fjölmiðlum og umræðum á samfélagsmiðlum var ekki í samræmi þær athugasemdir sem Gæðaráðið gerir við starfsemi skólans í lokaskýrslu sinni,“ segir í tilkynningu skólans.
Um athugasemdir sem leiddu til þeirrar niðurstöðu að Gæðaráð bæri takmarkað traust til þeirra prófgráða sem koma frá skólanum, segja forráðamenn á Bifröst að þær hafi lotið að „...takmarkaðri notkun á tölfræðilegum upplýsingum til að undirbyggja mat og áætlanagerð; lítilli viðleitni til að nota upplýsingar frá samanburðarháskólum; skorti á formlegri áætlanagerð; þörf á endurskoðun á stjórnsýslu Háskólans sem hefur ekki haldist í hendur við þróun hans; skorti á upplýsingum um vinnu brautskráðra nemenda; litlum tengslum á milli kennslu og rannsókna; skorti á akademísku starfsfólki með doktorsgráður; og skorti á formlegum aðferðum við ráðningu kennara og annars akademísks starfsfólks.“
Háskólinn á Bifröst er sjöundi, og jafnframt síðasti, háskólinn hér á landi sem gengst undir slíka gæðaúttekt í fyrstu umferð stofnanaúttekta á öllum háskólum landsins.
Fáar birtingar kennara við skólann á ritrýndum greinum hafa einnig komið til gagnrýninnar umræðu innan hins íslenska fræðasamfélags.