„Skólinn hefur það hlutverk að gera okkur að góðum manneskjum sem kunnum ákveðna hluti,“ sagði Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, í þættinum Skólinn okkar hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld kl. 20.30
Velferð og velsæld nemenda var umræðuefni fyrsta þáttar í sjónvarpsþáttaröðinni Skólinn okkar sem verður á dagskrá Hringbrautar á þriðjudagskvöldum í vetur. Fjallað verður um skóla- og menntamál frá ýmsum hliðum í þáttaröðinni. Aðalviðmælendur í fyrsta þættinum eru Sigríður Eyþórsdóttir, iðjuþjálfi í Hagaskóla, og dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindavið HÍ.
Sigríður og Jón Torfi eru sammála um að skólinn eigi að vera öruggur staður þar sem börnum líði vel. Ekki þurfi annað en að líta á laganna bókstaf í þeim efnum en þar segir að skólinn beri ríka ábyrgð á vellíðan nemenda.
„Velsæld og velferð nemenda er hlutverk skólans, við þurfum að undirstrika það betur og það þýðir að menntunarhlutverkið er breytt,“ segir Jón Torfi og bætir við að ef velsældinni er sinnt þá gengur námið betur.