Þrátt fyrir að tekist hafi að stíga mikilvæg skref í vikunni til lausnar á kjaradeilum berast enn fregnir af hópum sem segja upp vegna óánægju með kjaramál.
Tveir skólastjórar í grunnskólum á Akureyri hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjaramál. Um ræðir skólastjóra Naustaskóla og Giljaskóla.
Vikudagur.is sagði fyrst frá uppsögnunum.
Fram kemur að á ársfundi Skólastjórafélags Íslands nýverið kom fram mikil kergja meðal skólastjórnenda og áhyggjur vegna yfirvofandi uppsagna. Skilningsleysi Sambands íslenskra sveitarfélaga einkenni andrúmsloftið og dæmi séu um að kennarar fái hærri laun en stjórnendur. Stjórnendur hafi þannig verið settir út í kuldann meðan gengið hafi verið frá samningum við kennara, segir á vikudagur.is.