Skólar opnir í borginni, en víða lokað

Skólahald fellur víða niður í dag vegna veðurs, ekki síst um vestan- og norðanvert landið. Á höfuðborgarsvæðinu eru foreldrar og forráðamenn beðnir um að koma börnum sínum í skóla og tryggja að þau skili sér alla leið inn í hús. Skólaakstur fellur niður í Klébergsskóla á Kjalarnesi, en skólinn er opinn.
 

Ekkert skólahald verður í grunn- og leikskólum Vesturbyggðar og heldur ekki í skólum Hólmavíkur, í Súðavík og á Tálknafirði. Það sama á við í Þingeyjarsveit, en þar hefur skólahaldi verið aflýst í Þingeyrarskóla og í Stórutjarnarskóla

Kennsla fellur niður í Varmahlíðarskóla í Skagafirði og í leik- og grunnskólanum að Húnavöllum. Þá fellur kennsla einnig niður í grunnskólanum austan vatna í Skagafirði. 

Kennsla í Grunnskóla Borgarfjarðar, að Kleppsjárnreykjum og Varmalandi, fellur niður í dag, foreldrar nemenda í Hvanneyrrardeild eru beðnir um að athuga tilkynningu og sjá til. 

Búast má við að starf grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu muni raskast í dag, en sem fyrr segir eru skólar þar opnir en foreldrar eru beðnir að fylgja yngri börnum í skóla og yfirgefa þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks. Gera má ráð fyrir töfum á umferð, en skaplegt veður er á höfuðfborgarsvæðinun sem stendur.