Skólameistari ma vaktaði ástþór

Ástþór Magnússon gerði í ferð sinni um Norðurland nýverið tilraunir til að komast inn á sameiginlega heimavist Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans. Þá reyndi hann einnig að komast inn í skólahúsnæði MA í því skyni að safna undirskriftum frá nemendum vegna eigin forsetaframboðs.

Þessar upplýsingar hafa borist Hringbraut úr ólíkum áttum. Samkvæmt staðfestum heimildum tókst Ástþóri að minnsta kosti einu sinni að komast inn á heimavistina og inn í skólahúsnæði MA. Honum var vísað út af skólayfirvöldum um leið og tilgangur heimsóknarinnar varð ljós, líkt og þegar hann fór án heimildar inn í Verkmenntaskólann eins og Hringbraut greindi frá í gær.

Staðhæft er að Ástþór hafi gert fleiri tilraunir til að komast inn eftir að honum var vísað frá MA og hafi þá reynt að nota aðra innganga en aðalinngang. \"Jón Már Héðinsson, skólameistari MA, var á verði allan daginn, að fylgjast með útidyrum,\" segir einn heimildarmanna Hringbrautar. Heimildin segir að málið þyki sumpart ögn fyndið en alvara málsins sé sannarlega einnig til staðar, þá ekki síst út frá hagsmunum þeirra ungmenna sem um ræðir.

Ástþór hefur verið sakaður um að fá undirskriftir frá ungu fólki til forsetaframboðs með því að villa á sér heimildir. Skólameistari VMA hefur gert alvarlegar athugasemdir við að ungir nemar sem e.t.v. hafi ekki vitað hvað þeir voru að skrifa undir hafi fyrst að lokinni undirritun fengið upplýsingar hjá öðrum en Ástþóri að þeir gætu ekki stutt aðra frambjóðendur til Bessastaða, reglurnar kveði á um slíkt. Þá sé áhyggjuefni að ungt fólk ljái undirskrift sína kannski  af því einu að þeim finnist fyndið að ókunnugur karl ræði við það. Ástþóri hafi borið að fá upplýst samþykki nemendanna en misbrestur hafi verið á því. Einhverjir nemar töldu sig hafa verið að skrifa undir \"Virkjum Bessastaði\" án þess að vita hvaða skuldbindingar fylgdu.

Formaður nemendafélags Menntaskólans á Akureyri segist kannast við að Ástþór hafi náð nokkrum undirskriftum í nemendahópnum fyrir norðan.

Ástþór neitaði í samtali við Hringbraut í gær að honum hefði verið vísað út úr skóla á Akureyri. Hann sagði að undirskriftasöfnun gengi vel, Norðurland og Austurland væru búin en næst færi hann um Suðurland.