Kærasti fyrrverandi nemanda við Framhaldsskólann á Laugum réðist á skólameistarann, Sigurbjörn Árna Arngrímsson, og sló hann þannig að skólameistarinn er marinn og aumur í andliti. Þetta hefur Hringbraut fengið staðfest sem og að skólameistarinn hafi leitað til lögreglu. Árásin átti sér stað í vikunni.
DV sagði fyrst frá málinu. Tildrög þess munu þau að þegar fyrrverandi nemandi, stúlka, sótti eigur sínar í skólann taldi hún að þær væri ekki allar að finna þar sem þær ættu að vera. Í ljós kom að án vitundar skólameistara var eitthvað af föggum nemanda í öðru herbergi. Í kjölfarið réðist kærastinn á skólameistarann sem ekki tók á móti. Skólameistarinn er þekktur að fjörlegum íþróttalýsingum og var einn fremsti millivegalengdarhlaupari landsins.
Sigurbjörn hefur ekki svarað símtölum frá Hringbraut en hann kærði árásina til lögreglu skv. öruggum heimildum Hringbrautar. Hann tók nýlega við starfinu en Laugaskóli var í fréttum fyrr í vetur þegar Stundin greindi frá því að Valgerður Gunnarsdóttir héldi enn húsnæðisréttindum, leigði ódýrt og að Sigurbjörn hefði ekki aðgang að skólameistaraíbúð. Valgerður er þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norðurlandskjördæmi eystra.