Í menningarþættinum ljúfa, Lífsins list rölti sjónvarpskonan Sirrý um Skólavörðustíginn í gærkvöld, en stígurinn sá arna er að verða - og gott ef ekki þegar orðinn - einskonar svar Reykjavíkur við Soho Lundúna.
Og það er ekki leiðum að líkjast; Skólavörðurstígurinn er líkt og téð hverfi í höfuðborg breska heimveldisins alveg hreint iðandi af menningu, sköpun, hönnun og mannlífi sem ráfar á milli margvíslegra verslana, kaffihúsa og bara.
Þessu kynntist Sirrý í gærkvöld og miðlaði til áhorfenda sinna eins og henni er einni lagið.
Með í för var kvikmyndatökumaðurinn reynslumikli, Steingrímur Jón Þórðarson sem hefur marga linsuna rýnt á löngum ferli.
Lífsins list er hægt að nálgast að hluta eða í heild inni á hringbraut.is undir sjónvarpsflipanum.