Rannsóknarstöð í skógrækt á Mógilsá er fimmtug. Afmælinu er fagnað með tvennum hætti. Annars vegar með Fagráðstefnu um skógrækt sem haldin var nýlega í Hörpu í Reykjavik. Hins vegar með hátíð á Mógilsá í ágústmánuði þegar rétt fimmtíu ár verða liðin frá vígslu stövarinnar.
Á vegum stöðvarinnar á Mógilsá er unnið að marvíslegum rannsóknum. Stór hluti þeirra er að finna þann efnivið trjátegunda sem best getur henta til skóræktar á Íslandi.
Trjákynbætur hafa borið góðan ávöxt eins og hraðvaxið lerki sem þrífst vel við úthafsloftslag á Íslandi. Einnig asparklón sem hafa mikla mótstöðu gegn ryðsveppi og svo kynbættur fjallaþin til ræktunar á jólatrjám.
Þegar hugað verður að aukinni skógrækt á landinu til að binda kolefni og efla byggðir landsins er nauðsynlegt að huga um leið að eflingu skógræktarrannsókna á Íslandi.
rtá
Nánar www.bbl.is www.skogur.is