Algengasta amboðið í íbúðagötum á höfuðborgarsvæðinu í morgun var skófla og raunar verklegur kústur á stöku stað. Þessi verkfæri sáust víða á lofti enda gekk erfiðlega að koma bílum af stað í þröngum íbúðagötum eftir ofankomu gærkvöldsins.
Jafnfallinn snjór í Reykjavík hefur varla eða ekki verið meiri um þetta leyti vetrar um margra áratugaskeið - og fyrir vikið var svipurinn á æði mörgum bíleigendum nokkuð skömmustulegur þar sem þeir sáust moka undan sjálfrennireiðunum sem stóðu ekki undir því ágæta nafni í glannabítið í morgun þegar á að giska 50 sentímetra snjólag lá yfir suðvestanverðu landinu.
Mörg dæmi eru þess að fólk hafi verið upp undir eina klukkustund að koma sér frá heimili til vinnu, enda var umferð þess utan mjög hæg í borgarlandinu, en sem betur fer að mestu slysalaus.
Um 30 snjóruðningstæki verða við vinnu á götum borgarlandsins í dag og er fólk beðið að sýna stjórnendum þeirra tillitssemi,
Vetrarfærð er um allt land og ekkert ferðaveður um norðanvert landið þegar líða tekur á daginn.