Stjórn VR skoðar hvort rétt sé að láta reyna á að félagið gangi úr Alþýðusambandi Íslands án þess að bera það undir félagsmenn VR í allsherjaratkvæðagreiðslu, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Hann býst við því að látið yrði reyna á málið fyrir félagsdómi.
Ragnar segir í blaðinu að VR sé aðili að ASÍ í gegnum aðild að Landssambandi verslunarmanna: \"Það eina sem við þurfum að gera er að segja okkur úr Landssambandinu og þá segjum við okkur sjálfkrafa úr ASÍ. Stjórnin getur ákveðið þá úrsögn.“ Hann segir þó að lög ASÍ geri ráð fyrir að aðildarfélög þurfi að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu til að segja sig úr sambandinu: \"Þarna er ágreiningsmál og við erum að hugsa um að láta reyna á það fyrir félagsdómi,“ segir Ragnar. Málið verði skoðað á trúnaðarráðsfundi sem verði líklega í mars eða apríl.
Ragnar segir að VR greiði Landssambandi verslunarmanna og ASÍ um 150 milljónir á ári: \"Ég sé enga ástæðu til að vera að borga nánast helminginn af rekstrarfé Alþýðusambandsins og halda því uppi þegar mér finnst það vera að vinna á móti hagsmunum launafólks,\" segir Ragnar Þór í Fréttablaðinu í dag.
Skoðar úrsögn úr así án kosningar
Fleiri fréttir
Nýjast