Einkunnaverðbólga rannsökuð

Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra skoðar nú hvort fýsilegt sé að innleiða nýtt samræmt próf í grunnskólum landsins. Slíkt próf myndi taka á lykilhæfni sem nemendum sé ætlað að læra samkvæmt aðalnámskrá. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 

Mikil umræða hefur verið um hina svokölluðu einkunnaverðbólgu eftir að Verzlunarskóli Íslands hafnaði 60 nemendum með níu eða yfir í meðaleinkunn í vor. Ingi Ólafsson, skólameistari skólans hefur viðrað hugmyndir sínar um að koma á inntökuprófum í grunnskólum landsins til að takast á við þá einkunnaverðbólgu virðist hafa myndast á undanförnum árum.

Í samtali við Vísi í júní fullyrti Ingi að einkunnir úr grunnskólum hafi farið stigvaxandi frá því að samræmdu prófin voru lögð af með breytingum á grunnskólalögum árið 2008. Tekur hann dæmi um að meðaleinkunn í stærðfræði árið 2004 hafi verið 7,8 á samræmdu prófunum, en áratug síðar hafi meðaleinkunn í sama fagi verið 9,2. Fátt bendi til þess að nemendur í dag séu betri námsmenn en fyrir áratug og því eðlilegast að taka upp samræmd próf að nýju þar sem sanngjarnt viðmið sé haft að leiðarljósi. Illugi segir viðbrögð Inga vera skiljanleg: „Við höfum enga samræmda mælikvarða, eða þeir eru ekki að virka sem skyldi. Þá er eðlilegt að þeir sem eru að taka við nemendum af einu skólastigi og upp á næsta hafi áhyggjur,“

Menntamálastofnun rannsakar nú niðurstöður samræmdra prófa í samanburði við skólaeinkunn til að leggja mat á hvort einkunnaverðbólga eigi sér í raun og veru stað í grunnskólum landsins. 

Illugi segir í samtali við Fréttablaðið að Námsmatstofnun hafi um nokkurt skeið skoðað möguleika þess að innleiða nýtt samræmt próf sem myndi byggja á lykilþáttum í námskránni, en um leið tryggja að nemendur hafi vald á þeim fögum sem hafa alla jafna verið mikilvægust í framhaldsskóla, líkt og íslensku, stærðfræði og ensku. Hins vegar megi slíkt próf ekki steypa alla nemendur í sama mót: „Við viljum ekki að grunnskólinn þróist þannig að það verði öll áhersla lögð á einhver þrjú fög, það er að segja að samræmd fagapróf verði allsráðandi í kerfinu.“

Samkvæmt Illuga má áætla að tillögur að slíku prófi verði tilbúnar á næstu mánuðum.